Þú ert hér: Home


Jólafundur FSH 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæri ferðaþjónustuaðili.

Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins bjóða þér á skemmtilegan jólafund laugardaginn 26. nóvember nk. kl. 13:00 í Hafnarfirði.  Þann sama daga verður Jólaþorpið í Hafnarfirði opnað og okkur sérstaklega boðið þangað.  Allir hvattir til að taka fjölskylduna með !

 

Jólafundurinn hefst kl. 13:00 í Byggðasafni  Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8 (Gamla Sjóminjasafnið / við A-Hansen).  Björn Pétursson forstöðumaður Byggðasafnsins segir stuttlega frá safninu og jóladagskrá.   Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi kynnir Jólaþorpið í Hafnarfirði.

Eftir það verður gengið í Hellisgerði sem er örskammt frá en þar hefur Álfagarðurinn hefur komið sér fyrir í 20 fermetra húsi frá 1905.  Ragnhildur Jónsdóttir sjáandi tekur á móti hópnum og ef veður leyfir verður farið í stutta álfagöngu í garðinum.  Boðið upp á kaffisopa og heitt súkkulaði.

Að lokum verður Jólaþorpið heimsótt en það opnar þennan sama dag.  Stutt er að fara frá Hellisgerði í Jólaþorpið og þar verður fjörug skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna og skemmtilegir sölubásar með jólavarning og góðgæti.

Skemmtum okkur saman á aðventu og takið alla fjölskylduna með.

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 24.nóvember.

 

This form is no longer open for submission.

 

Skráning á póstlista

Nafn:
Netfang: