Þú ert hér: Home


Göngur og réttir

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Göngur og réttir eru þjóðlegir og spennandi viðburðir ár hvert á Norðurlandi vestra en eins og fólk hefur orðið vart við er haustið á næsta leiti og senn líður að fyrstu réttum þann 4. september. Helstu fjárréttir á Norðurlandi vestra má nefna Hamarsrétt á Vatnsnesi sem er einkar falleg og sérstök rétt við ströndina. Miðfjarðarrétt í Húnaþingi vestra, Auðkúlurétt og Undirfellsrétt í Austur-Húnavatnssýslu og Staðarrétt og Skarðarétt í Skagafirði. Helstu stóðréttirnar eru Staðarrétt og  Laufskálarétt í Skagafirði, Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra og Skrapatungurétt í Austur- Húnavatnssýslu. Hvergi á landinu koma eins mörg hross saman í stóðréttum eins og á Norðurlandi vestra.
 

Skráning á póstlista

Nafn:
Netfang: