Reykjanesskaginn dregur nafn sitt af suðvesturhorni skagans, Reykjanesi, sem Suðurnes eru hluti af. Suðurnes eru hluti af mesta þéttbýli Íslands og um svæðið fara nær allir sem koma eða fara frá landinu. Náttúran er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með tilheyrandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum sem dýralífsunnendur mega alls ekki láta fram hjá sér fara.



