Greinar og fróðleikur af ýmsu tagi
Hver gerir hvað? Ferðamálaflóran i hnotskurn
Fjölmargir aðilar vinna að framgangi ferðamála. Þessi samantekt er eflaust ekki tæmandi en ætti að veita smá innsýn i greinina. Allar ábendingar og leiðréttingar eru vel þegnar.
Iðnaðarráðuneytið er ráðuneyti ferðamála á Íslandi. Ráðuneytið sinnir langtímastefnumótun og ber ábyrgð á gerð ferðamálaáætlunar, lagafrumvarpa, reglugerða og endurskoðun laga um ferðamál. Katrín Júlíusdóttir er ráðherra ferðamála og Helga Haraldsdóttir er skrifstofustjóri ferðamála
Ferðamálaráð er ráðgefandi ráð samgönguráðherra. Í því sitja fulltrúar skipaðir af ráðherra, Samtökum íslenskra sveitarfélaga, Ferðamálasamtökum Íslands, Samtökum ferðaþjónustunnar og Útflutningsráðs. Svanhildur Konráðsdóttir, Reykjavík , er formaður Ferðamálaráðs.
Ferðamálastofa er stofnun sem heyrir undir Iðnaðarráðuneytið. Yfir henni er Ferðamálstjóri. Þar annast starfsmenn útgáfu leyfa og skráningu á starfsemi í ferðaþjónustu, þróunar-, gæða- og skipulagsmál ferðaþjónustu og vinna að markaðs- og kynningarmálum ferðaþjónustu.
Ólöf Ýrr Atladóttir er ferðamálastjóri.
Ferðamálasamtök Íslands er samstarfsvettvangur átta landhlutasamtaka sem vinna að framgangi ferðamála hver á sínu svæði.Tilgangur þeirra er að skapa öflugan samstarfsvettvang innan ferðaþjónustunnar með það að markmiði að bæta þjónustu við ferðamenn og hámarka arðsemi í góðri sátt við náttúru og nærumhverfi . Samtökin eiga tvo fulltrúa í Ferðamálaráði.
Ferðamálasamtök landshlutanna eru átta talsins og er fulltrúi frá hverju þeirra stjórnarmaður í Ferðamálasamtökum Íslands. Hlutverk samtakanna er að vinna að hagsmunamálum ferðaþjónustu, stuðla að aukinni þjónustustarfsemi við ferðamenn og skipuleggja samstarf aðila innan samtakanna, þau hafa komið að stofnun Markaðsstofa í sínum landshlutum og eiga þar fulltrúa í stjórn.
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) eru hagsmunasamtök ferðaþjónustufyrirtækja og voru stofnuð 1998. Innan SAF eru flest öll stærstu ferðaþjónustufyrirtki landsins, þau eru aðilar að Samtökum Atvinnulífsins og annast samningagerð, veita umsagnir, standa vörð um hagsmuni og halda úti öflugu fræðslustarfi. Innan þeirra starfa fagnefndir s.s hótel og veitingarekstur, bílaleigur, afþreyingu og fleira.
Markaðsstofur ferðamála eru 7 talsins, á Vestfjörðum, Norðurlandi, Austfjörðum Vesturlandi, Suðurnesjum , Suðurlandi og á Höfuðborgarsvæðinu( Höfuðborgarstofa). Hlutverk þeirra nokkuð líkt, t.d. að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna ásamt beinni markaðssetningu til ferðaheildsala og vöruþróun í ferðaþjónustu. Markaðsskrifstofurnar starfa í samvinnu við fyrirtæki í greininni, ferðamálasamtök, atvinnuþróunarfélög og fl. Sums staðar eru þessar stofur reknar í nánum tengslum við upplýsingamiðstöðvar.
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála eru fjölmargar. Aðal upplýsingamiðstöðvarnar eru níu talsins og styrktar af opinberu fé. Flestar aðrar upplýsingamiðstövar eru starfræktar af sveitarfélögum í nánu samstarfi við ferðamálasamtök og markaðsskrifstofur. Þær veita upplýsingar til ferðamanna sem komnir eru til landsins og halda utan um ýmsa skráningu á þjónustu hvers svæðis, dreifa bæklingum og sjá um heimasíður í samstarfi við Markaðssstofur
Ferðamálafélög eru grasrótarfélög sem mörg hver studd af sveitarfélögum. Flest þeirra vinna við framgangi ferðamála á sínu heimasvæði.
Ferðaþjónustuklasar eru hópar ólíkra fyrirtækja sem taka sig saman og kynna sig undir einu merki og ímynd. Þeir starfa að ýmsum verkefnum s.s matvælaklasar, safnaklasar, svæðisbundnir klasar svo sem „Ríki Vatnajökuls“ og „ All Senses group“ á Vesturlandi. Þetta samstarfi í samkeppni hefur oft sprottið úr ‘Hagvexti á heimaslóð” sem Útflutningsráð skipuleggur og Vaxtasamningum Iðnaðarráðuneytisins.
Ferðaþjónusta bænda er dæmi um klasa sem myndaðist á landsvísu en ferðaþjónustubændur hófu samstarf árið 1965 og er nú samstarfsvettvangur 150 fyrirtækja í ferðaþjónustu sem starfrækja ferðaskrifstofu sem sér um kynningu, markaðsetningu og sölu á þjónustu sinna félagsmanna.
Ferðamálafulltrúar eru starfsmenn sveitarfélaga og vinna að ýmsum málum tengdum ferðamálum á sínu heimasvæði, oftast í tengslum við atvinnuráðgjöf eða atvinnuþróun.
Atvinnuþróunarfélög og atvinnuráðgjafar sinna oft ferðamálum en mjög misjafnt er eftir landshlutum hve ferðaþjónusta er stór hluti starfseminnar. Ferðaþjónustufyrirtæki geta leitað til slíkra þróunarfélaga og ráðgjafa vegna sinna mála líkt og önnur fyrirtæki.
Rannsóknamiðstöð ferðamála er miðstöð rannsókna í ferðamálafræðum á Íslandi. Hún er studd sameiginlega af Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum að Hólum, Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálastofu Markmið stofnunarinnar eru að efla rannsóknir og menntun á sviði ferðamála, styrkja tengsl háskólastarfs og atvinnulífs og auka þekkingu um ferðamál gegnum erlent samstarf.
Fjölmargir fleiri aðilar koma að ferðamálum með einum eða öðrum hætti svo sem einkaaðilar sem starfrækja vefsíður, bókunarþjónustur og útgáfufyrirtæki. Einnig hafa verið stofnuð samtök og fyrirtæki um ýmis sérverkefni innan ferðaþjónustunnar svo sem.
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu
Samtök um heilsutengda ferðaþjónustu
Samtök um fuglaskoðun
Ráðstefnuskrifstofa Islands
Ferðaþjónustufyrirtækin sjálf leggja líka mikið af hendi í markaðssetningarstarfi og fjölmörg sveitarfélög setja mikla vinnu og fjármagn í ferðamál.
Samantekt í april 2010 UH



