Lög Ferðamálasamtaka Íslands
I. Kafli.
Nafn, heimili, aðild og meginhlutverk samtakanna.
1. gr.
Nafn samtakanna er FERÐAMÁLASAMTÖK ÍSLANDS (FSÍ).
Heimili samtakanna og varnarþing er það sama og formannsins hverju sinni.
2. gr.
Aðilar að samtökunum eru Ferðamálasamtök Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands Vestra, Norðurlands Eystra, Austurlands, Suðurlands, Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins.
3. gr.
Meginhlutverk samtakanna er að vera í forsvari fyrir ferðamálasamtök landshlutanna um sameiginleg málefni þeirra, vinna að hagsmunamálum aðila í ferðaþjónustu innan landshlutasamtakanna og að samræmingu í þessari starfsemi almennt á landinu..
Samtökin skulu meðal annars:
1. Skipuleggja samstarf aðila innan samtakanna, m.a. með fræðslu- og útgáfustarfsemi, einnig samstarf við aðila utan samtakanna eftir þörfum.
2. Efla sameiginlega kynningu landshlutasamtakanna og aðila innan þeirra vébanda.
3. Stuðla að umræðu um framtíðaráform í ferðaþjónustu.
4. Vera tengiliður við Ferðamálastofu og stjórnvöld í sameiginlegum málum samtakanna.
5. Hafa frumkvæði að nýjungum í ferðamálum og stuðla að aukinni og náttúruvænni þjónustu við ferðamenn.
6. Samtökin skulu hafa samstarf við sambærileg samtök annarra landa eins og þurfa þykir.
II. Kafli.
Stjórn
4. gr.
Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands skal skipuð 9 mönnum. 8 fulltrúar skulu skipaðir af landshlutasamtökunum, einn frá hverjum samtökum og jafn margir til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega en stjórnin skiptir að öðru leiti með sér verkum. Kjósa skal 2 skoðunarmenn og einn til vara.
5. gr.
Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands kýs sér sjálf framkvæmdarstjórn að loknum aðalfundi og skipa hana formaður og tveir meðstjórnendur auk tveggja varamanna, allir kosnir úr hópi stjórnarmanna.
III. Kafli.
Stjórnarfundir
6. gr.
Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands skal halda fundi eigi sjaldnar en þrisvar sinnum á ári eða oftar ef formaður eða þrír stjórnarmenn æskja þess.
Fundir skulu boðaðir með dagskrá með minnst tveggja vikna fyrirvara. Stjórnin skal halda gerðarbók og senda afrit fundargerða til landshlutasamtakanna og þeirra annarra sem stjórn ákveður.
7. gr.
Framkvæmdarstjórn skal halda fundi eigi sjaldnar en 6 sinnum á ári og oftar ef þörf krefur. Framkvæmdarstjórn skal halda gerðarbók og senda öllum stjórnarmönnum afrit fundargerða.
IV. Kafli.
Félagsfundir
8. gr.
Aðalfundur samtakanna skal haldinn fyrir lok apríl ár hvert og skal hann boðaður opinberlega með 21 dags fyrirvara. Fundurinn hefur æðsta vald í málefnum samtakanna.
Á aðalfundi hafa atkvæðisrétt þrír fulltrúar frá hverjum landshlutasamtökum. Ber þeim að leggja fram kjörbréf, undirrituð af tveimur stjórnarmönnum aðildarsamtaka.
Formenn ferðamálafélaga eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti.
Rétt til fundarsetu sem áheyrnarfulltrúar eiga allir félagsmenn landshlutasamtakanna.
Dagskrá aðalfundar skal vera þannig:
1. Kosnir starfsmenn fundarins.
2. Kosning 3ja manna starfsnefnda:
a. Kjöbréfanefnd
b. Kjörnefnd
c. Fjárhagsnefnd
d. Laganefnd (ef tillögur til lagabreytinga liggja fyrir).
3. Umræða um sérstök málefni, ef ákveðin hafa verið og boðuð í fundarboði.
4. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
5. Reikningar samtakanna lagðir fram til afgreiðslu.
6. Starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár, ákvörðun um árgjöld og þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið starfsár.
7. Lagabreytingar.
8. Kosningar:
a. Kosning formanns
b. Tilnefningar í stjórn frá aðildarsamtökunum.
c. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.
d. Tilnefning löggilts endurskoðanda.
9. Önnur mál.
Fyrir aðalfund hvert ár skal stjórn Ferðamálasamtaka Íslands gera drög að fjárhags- og starfsáætlun fyrir næsta starfsár.
9. gr.
Almenna félagsfundi (samráðsfund) samtakanna skal halda þegar stjórn eða framkvæmdarstjórn samtakanna þykir þurfa og einnig geta 3 aðildarsamtök krafist fundar. Þegar lögmæt krafa um fundahald er komin fram til einhvers stjórnarmanns skal stjórnin boða til fundar er haldinn skal innan 14 daga frá því að krafan barst. Hafi stjórn samtakanna ekki boðað til fundar er tilskyldir 14 dagar eru liðnir geta aðildarsamtök boðað til fundar í samtökunum sjálfum.
10. gr.
Lögmætur aðalfundur og almennur fundur samtakanna hefur ákvörðunarvald í öllum málum samtakanna innan þeirra marka er lög þeirra setja. Aðalfundur og almennur fundur er lögmætur ef hann er boðaður með lögmætum hætti.
11. gr.
Stjórn samtakanna skal boða til funda með bréfi til allra aðildarsamtakanna með minnst viku fyrirvara.
Á aðal- og almennum fundum hafa hver aðildarsamtök sem greiða árgjald þrjú atkvæði, en allir félagsmenn landshlutasamtakanna eiga rétt til fundarsetu á almennum fundum Ferðamálasamtaka Íslands með málfrelsi og tillögurétti.
12. gr.
Formaður stjórnar samtakanna stýrir almennum fundum samtakanna ef fundurinn kýs sér ekki sérstakan fundarstjóra.
Fundarstjóri skal í upphafi fundar kanna hvort fundur sé lögmætur. Hann tilnefnir síðan fundarritara sem rita skal í fundargerðarbók skýrslu um það sem gerðist á fundinum og færir inn allar samþykktir sem eru gerðar. Fundargerð skal undirrituð af fundarstjóra og fundarritara.
V. Kafli.
Reikningar og endurskoðun
13. gr.
Reikningsár samtakanna er almanaksárið. Skal gerð ársreiknings lokið í síðasta lagi 5 vikum fyrir aðalfund ár hvert og hann þá afhenntur skoðunarmönnum til endurskoðunar. Skoðunarmenn skulu hafa lokið endurskoðun ársreiknings eigi síðar en fjórum vikum fyrir aðlafund. Ber þeim þá að senda hann til stjórnar félagsins ásamt athugasemdum sínum.
Í síðasta lagi 21 degi fyrir aðalfund skal stjórn samtakanna hafa samið svör við athugasemdum endurskoðenda og skulu þau og athugasemdir send aðildarsamtökunum með aðalfundarboði ásamt ársreikningi.
VI. Kafli.
Lagabreytingar o.fl.
14. gr.
Á fundum samtakanna ræður afl atkvæða, enda sé ekki um að ræða ákvarðanir þar sem lögin áskilja samþykki aukins meirihluta.
15. gr.
Fjárhæð árgjalda skal ákveðin á aðalfundi fyrir næsta starfsár.
16. gr.
Lögum samtakanna verður aðeins breytt á aðalfundum samtakanna.
Tillögum til lagabreytinga skal skila til formanns stjórnar Ferðamálasamtaka Íslands eigi síðar en 1. mars ár hvert. Lagabreytingar skal senda aðalfundarfulltrúum með fundarboði aðalfundar. Tillögur til lagabreytinga eru samþykktar ef 2/3 hlutar atkvæða á fundinum samþykkja þær.
17. gr.
Komi fram tillaga um að samtökunum verði slitið skal hún sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytinga. Eignum samtakanna eða gjöldum skal þá skipt milli aðildarsamtakanna í hlutfalli við árgjöld þeirra.
IIV. Kafli.
Önnur ákvæði
18. gr.
Samtökin skulu m.a. fjármagna starf sitt:
a. Með árgjöldum aðildarsamtakanna.
b. Með fjárveitingum á fjárlögum.
c. Með öðrum fjáröflunarleiðum.
19. gr.
Þegar tekin er ákvörðun um sérstök verkefni á vegum FSÍ geta einstök aðildarsamtök hafnað þátttöku í slíku verkefni. Höfnun á þátttöku skal tilkynna skriflega til stjórnar FSÍ innan 30 daga frá samþykki fjárhagsáætlunar og/eða boðun sérverkefnis.
20. gr.
Þar sem ákvæði laga þessara segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum landslaga.



