Stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja
Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára á aðalfundi en einn er skipaður af
Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Formaður er kosinn beinni kosningu á
aðalfundi til 2ja ára.
Samtökin voru stofnuð 1984 af sveitarfélögunum á Suðurnesjum, fyrirtækjum og áhugafólki um uppbyggingu ferðaþjónustunnar á Suðurnesjum. Ferðamálasamtök Suðurnesja eru regnhlífarsamtök fyrir ferðaþjónustuna á Suðurnesjum. Þau starfa að ýmsum hagsmuna- og framfaramálum fyrir greinina m.a. uppbyggingu ferðamannastaða, stikun gönguleiða, útgáfu efnis, aðgengismálum, menningartengdri ferðaþjónustu, stígagerð og fleira.
| Kristján Pálsson formaður | Reykjanesbæ |
| Reynir Sveinsson varaformaður | Sandgerði |
| Helga Ingimundardóttir ritari | Reykjanesbæ |
| Ásgeir Hjálmarsson | Garði |
| Óskar Sævarsson | Grindavík |
| Gunnar Marel Eggertsson | Reykjanesbæ |
| Magnea Guðmundsdóttir | Reykjanesbæ |
| Björn Haraldsson | Grindavík |



