Þú ert hér: Home Markaðsstofur Norðurlands


Norðurlands

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

sxchusMarkaðsstofa Norðurlands

 

Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi (MFN) hefur starfað frá árinu 2003, en skrifstofan er samstarfsvettvangur Norðurlands í ferðamálum og er í eigu Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra og Norðurlands vestra.

 

Helsta hlutverk MFN er að samræma markaðs- og kynningarmál norðlenskrar ferðaþjónustu gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum og hafa starfsmenn skrifstofunnar mikla reynslu og þekkingu á sviði markaðs- og kynningarmála. Einnig styrkir MFN og tekur virkan þátt í klasasamstarfi í tengslum við Vaxtarsamning Norðurlands.

 

Ferðaþjónustufyrirtæki geta leitað eftir aðstoð og ráðgjöf hjá MFN varðandi kynningar- og markaðsmál. Einnig stendur skrifstofan fyrir fræðslu fyrir ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi í samstarfi við símenntunaraðila á svæðinu. Skipulagning heimsókna fjölmiðla- og ferðaskrifstofufólks er einnig stór þáttur í starfseminni og hann er afar mikilvægur þáttur í að koma Norðurlandi á framfæri erlendis.

 

Skrifstofan hefur gefið út níu bæklinga um ferðamál á Norðurlandi. Einnig hefur skrifstofan tekið þátt í auglýsingaherferðum á Norðurlöndum og meginlandi Evrópu þar sem Norðurland er kynnt sem ákjósanlegt ferðamannasvæði. Þessar kynningar eru í samstarfi við Ferðamálaráð, Flugleiði og nokkrar ferðaskrifstofur. Þá hefur sameiginleg vefsíða fyrir Norðurland www.nordurland.is verið eitt af verkefnum skrifstofunnar í þeim tilgangi að kynna ferðaþjónustu á Norðurlandi sem víðast.

 

 

Markaðsstofa Norðurlands

Skipagata 9, 3ju hæð, 600 Akureyri.

Sími: 462 3300 Fax: 462 3303

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Starfsmenn:

Asbjorn Bjorgvinsson, Managing Director

E-mail: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tel: +354 462 3300

 

Katrin Hardardottir, Project Manager

E-mail: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tel: +354 462 3300

 

Maria Axfjord, Financial Director

E-mail: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tel: +354 462 3300

 

 

 

Vefsíður Markaðsstofu Norðurlands:

www.nordurland.is

 

Skráning á póstlista

Nafn:
Netfang: